Loksins komum við okkur af stað með heimasíðuna! :) ýmislegt búið að gerast síðan leikskólinn opnaði í ágúst. Ármann Bjarni og Sigurlaug fóru í fyrsta bekk og í staðin fengum við Sigurgeir Erik og eru núna 9 börn á leikskólanum :)
það hafa margir átt afmæli frá því að leikskólinn byrjaði:
Elísa varð 5 ára 31 júlí og hélt uppá það í september á leikskólanum.
Sigurður Örn varð 2ja ára 31. ágúst
Hinrik Nói varð 3ja ára 22. september
Inger Elísabet varð 4ra ára 23. október
við erum búin að fara á brúðuleikhús, fá slökkviliðið í heimsókn og höfum föndrað alveg heilan helling :) og núna styttist í jólin, ótrúlegt en satt og við erum strax farin að íhuga hvað við ætlum að gera fyrir jólin. það verður einnig vel skreytt hjá okkur þar sem Húsasmiðjan gaf okkur heilan haug af jólaskrauti :) og viljum við þakka þeim kærlega fyrir það.